Heimasíða Dalvíkur/Reynis

Velkomin(n) á heimasíðu Dalvíkur/Reynis

04.05.2008 18:59:48 / Síðustjóri

Ný Síða


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 21:44:44 / Síðustjóri

Ný heimasíða

Nú styttist í það að ný heimasíða verði opnu en það mun gerast seinni part á laugardaginn. Búið er að vinna hörðum höndum síðustu dag til þess að síðan verði birtingarhæf.
Því get ég lofað ykkur að nýja síðan er mun skemmtilegri og betri heldur en þessi siða sem við höfum hér og verður gaman að sjá hvernig menn taka í síðuna.

Opnunarpistillinn á síðunni verður frá Fílnum en hann er í þessum töluðu orðum að leggja lokahönd á pistilinn.

www.dalvik-reynir.is

En að öðru nú er komið æfingarplan fyrir helgina og er það svona:
  • Fimmtudagur: kl 14 á Dalvík, mæting 13.15 á shell
  • Föstudagur: kl 20.00, leikur við Magna í boganum
  • Laugardagur: kl 15.00, leikur við 2.flokk KA í boganum
Eftir leik er síðan einhver skemmtun hjá liðinu en Leikmannaráð er að setja saman dagskrá.

kv Egill



» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 19:29:05 / Síðustjóri

Loksins loksins

Nenni ekki að hafa þetta langt. En í stuttu máli sagt þá unnum við Hött 2-1 í boganum í dag. Viktor Már kom okkur í 1-0 og síðan bætti þjálfarinn Örlygur Helgason við öðru marki. Bæði mörkin í fyrrihálfeik. Höttur minnkaði svo leikinn í 1 mark þegar þeir skoruðu undir lok leiksins.

Gaman er að geta þess að í dag spila með okkur leikmaður sem hefur verið að stunda bumbu bolta í Danmörku um nokkurt skeið. Hann ákvað síðan að koma heim af sökum þess að hann á ekki pening og þurfti að húkka sér far heim sem gekk lýgilega vel..
En þessi leikmaður ætti að vera Dalvíkingum vel kunnugur. Hann heitir Gunnar Már Magnússon, við bjóðum hann velkominn heim.

Egill Ármann Kristinsson


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 14:26:33 / Síðustjóri

Tap fyrir þór

Í morgun kl 8.30 var spilaður æfingaleikur við 2.flokk Þórs. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Þór þar sem þeir skoruðu  öll sín mörk á stuttum kafla í fyrri hálfleik og má segja að menn hafi enþá verið að nudda stýrurnar úr augunum. Eftir þessi mörk skánaði leikur okkar manna til muna og fórum við að spila aðeins betur.
Seinni hálfleikur var síðan besti hlutinn okkar í leiknum þar sem við vorum að spilla nokkuð góðan varnarleik og ágætan sóknar leik.

Byrjunar lið frá vinstri: Tryggvi (M) - Sigþór - Höddi - Jónsi - Atli - Dóri - Viktor - Ingvi - Egill - Biggi - Ási.

Bekkurinn: Snorri - Sinisa - Friðjón og Kaninn sem ég man ekki hvað heitir. Allir komu  þeir inná og spiluðu helling.

Eftir leik var síðan kosið í leikmannaráð. Farið var þannig að , að 1 úr hverju aldurskeiðir var kosinn í leikmannaráð. Fyrir Eldri leikmann var það Ingvi Rafn sem var kosinn, Fyrir miðaldra hópinn var það Friðjón sem var kosinn og fyrir yngri kynslóðina var það Egill sem var þar kosinn.

Sem sagt leikmanna ráð er þannig skipað:
Egill Ármann Kristinsson
Friðjón Sigurvinsson
Ingvi Hrafn Ingvason

Nú er ég að fara að ráðast í það verkefni að gera sektarsjóð. Nú til þess að þessi sjóður verði að veruleika þarf í fyrstalagi að finna fyrir hvað á að sekta leikmann og er réttast að allir fái að taka þátt í því að velja það. Þannig ég vil byðja ykkur að koma með hugmyndir hérna í comment hvað þið viljið sjá og nýskipað leikmannráð með Tryggingafulltúa innanborðs fer síðan fyrir þetta og velur úr það sem er eitthvað vit í.
Ein sem mig langar að segja er það að mér finnst að allir leikmenn og þjáflarar þurfi að greiða mánaðargjald í sjóðinn.

Endilega segja ykkar skoðin því þetta snertir alla leikmenn

kv Egill


» 14 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 15:21:50 / Síðustjóri

Ljósadeild Akureyrar

Ég fékk þennan pistil sendan frá Ljósadeild Akureyrar og fannst mér hann nokk merkilegur þannig ég ákvað að skella honum hérna inn.


Jæja nú er komið að pistlinum mínum:

Mér finnst við vera velta okkur mikið uppúr því hversu mórallinn sé slæmur og hvað vantar og hvað þarf enn ég held að það sé málið að hver og einn líti aðeins á sjálfann sig og kanni hvað þarf hann að laga frekar enn að við kvörtum endalaust í hverjum öðrum.

Enn án spaugs þá held ég og vona að þetta sé árið okkar, og við drullumst uppúr þessari deild í eitt skiptið fyrir öll,  sýnum karakter sem hópur. Ég veit þar sem ég er Dalvíkingur í húð og hár að mikill bjartsýni ríkir fyrir mótið í sumar á Dalvík, og mikil ánægja með það að týndir synir dalvíkinga  hafi snúið aftur t.d. Hemmi og Ingvi svo flokka ég Jóa líka sem  einn af þeim. Ég held að Dalvík/Reynir sé farið að líkjast Dalvík eins og það var fyrir sameiningu við Leiftur á sínum tíma sem mér fannst skemma töluvert fyrir Dalvík.

Nú er svo komið að við erum með næga hæfileika í liðinu til að koma því uppúr þessari deild þó að það verði ekki auðvelt. Enn það er ekki nóg að hafa hæfileikaríkt lið heldur þarf að vera stemning í liðinu. 

Ef við náum upp sömu stemningu í liðið og var á árum áður þegar Örri var ungur og Garðar var enn að spila þá hef ég ekki áhyggjur af okkur í sumar þá einkenndi liðið gríðarlega gleði sungið var eftir alla sigurleiki fagnað skemmtilega efti öll mörk og það var virkileg gleði í liðinu það er það sem mér finnst að okkur vanti sem hóp að sýna á vellinum að við höfum gaman að því að spila saman og gaman að því að skora mörk. Ég hef trú á að við getum gert okkar til að hægt sé að rífa upp gleðina og stemninguna bæði innan og utan vallar. 

Enn það er ekki bara okkar heldur verður fólkið í kringum boltann, stjórn og aðrir að drullast til að rífa þetta upp með okkur, hafa einhverja umgjörð í kringum leikina og umfram allt að fá fólk á völlinn.
 
Nú reynir á að við liðið stöndum saman, fáum meiri gleði í þetta og gerum okkur klára fyrir frábært fótboltasumar.
                    
Áfram Dalvík.
              
Friðjón

Eins og komið hefur fram á faðir minn Fíllinn næsta pistill.


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 23:52:37 / Jónsi

Tap gegn Magna

Dalvík/Reynir tapaði í kvöld fyrir Magna 0-3 í leik sem var ágætur lengi framan af en því miður kom slæmur kafli í síðari hálfleik sem gerði út um vonir okkar manna til að ná einhverju út úr leiknum. Magni skoraði á þessum 10-15 mín kafla þrjú mörk.

Leikur okkar í fyrri hálfleik var að mörgu leyti góður, boltinn gekk oft vel milli manna og við fengum nokkra ágætis möguleika á því að skora sem því miður þó nýttust ekki. Síðari hálfleikur var ekki jafn góður eins og tölurnar gefa vel til kynna. Ekki skal týna eitthvað eitt atriði til sem klikkaði heldur eru örugglega margir hlutir sem má laga.

Nú hið frábæra er að það er leikur strax á sunnudag og svo strax aftur á fimmtudag þannig að menn þurfa ekki að sleikja sárin (sem sum voru helvíti stór eftir rennitæklingar dagsins) lengi. Við skulum nú hætta að velta okkur upp úr neikvæðu hlutnum og einbeita okkur að því jákvæða, sem var hellingur af í þessum leik.Við erum menn og menn gera mistök sagði einn spekingurinn og hann hafði svo sannarlega rétt hjá sér. Hið góða er að við getum lært af þeim.

Mbk, Jónsi.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 07:06:02 / Síðustjóri

Updates

Ef mér skjátlast ekki þá eru bara nokkrir dagar þangað til að ný síða verður tekin í notkun, Tryggvi Brúðgumi er að vinna hörðum höndum við að klára hana.
Ég er búinn að sjá hvernig síðan á að líta út, það verður að segjast að þetta er nokkuð flott hjá Tryggva
 
Síðan vildi ég láta fylgja með hérna komment úr síðasta pistli.

Rauða ljónið skrifaði
jæja strákar það er nú meiri stemmningin á síðunni uss! Verum að fara rífa þetta upp og láta pistlana ganga! Hafa tíma á þeim og skuld ef menn standa sig ekki. En þá að fótboltahliðinni við erum bunir að æfa vel þessu fáu sem mæta alla vikuna! Alltof leleg mæting margir sem maður ser bara á mánudögum og það gengur ekki verðum að fara stilla okkur saman ekki langt í mót verðum að fara þefa af rassalyktinni af hvor öðrum. Verðum að fara rífa þetta aðeins upp og æfa vel fyrir átökin því menn virðast vera meiðast líka leiðilegt með hemma með slitið krossband en maður í manns stað þar til hann kemur aftur hehe en koma svo rífum síðuna til lífs og skrifum bara eitthvað hver og einn ekki bara rífast í ásanum! En nú verða allir að fara taka til í sínum skáp og finna það besta félagslega og fótboltalega þá verðum við flottir í sumar ok samrýmum hópin! Gerum það ekki bara skrifa um það gamli hehe en smá grín í lokin Ingvi frændi er að selja páskaunga sem fæddust í dag á hreiðrinu á bringuni hans hehe en bið að heilsa förum að hugsa okkar gang allir sem einn áfram DALVÍK



» 11 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:40:39 / Síðustjóri

Hugleiðingar Háska

Jæja þá er komið að því að ég riti nokkrar línur úr því dvergurinn skoraði á mig ;).

Mig langar að tala um umgjör liðsins og stefnu. Ef liðið ætlar sér upp ?  Sem ég vona að

Sé meiningin hjá öllum eða flestum í það minnsta . Þá þurfa allnokkrir hlutir að vera á hreinu

hjá leikmönnum og ekki síst aðstandendum liðsins.Byrjum á leikmönnum þar eru nokkur atriði

Stundvísi

Metnaður

Dugnaður

Gleði

Agi

Og ekki væri verra að hafa smá getu með ;)  en öll þessi atriði prýða góðan knattspyrnumann og eigum við að leggja okkar að mörkum hver og einn til að bæta okkur í þessum þáttum.Persónulega finnst mér mikið vanta uppá hjá okkur hvað þetta varðar, ég er ekki að skjóta á einn eða neinn  það er enginn undanskilinn og allra síst ég.

Talandi um umgjörðina þá er engan veginn ásættanlegt að það sé ein æfing í boganum persónulega tel ég liðið þurfa að komast meira í bogann til að framförin komi fyrr og liðið verði þokkalega vel slípað í byrjun móts.Það er ekkert grín að komast upp úr þessari deild.Einnig verður þetta markmannsvesen að komast í  fastar skorður  því lykillinn að góðu gengi er að stórum hluta markvarsla. Síðast en ekki síst þarf að útrýma þessum ungmennafélagsanda sem ríkir hjá sumum ,það næst enginn árangur á honum. Menn þurfa einnig að geta tekið gangrýni og einnig að þora að gagnrýna á faglegum nótum.Mér finnst við vera  eins og 11 einstaklingar sem þekkjast varla þegar við erum að spila leiki en ekki eins og lið.Andleysi ríkir oft á tíðum og uppgjöf. Taka þarf á því á æfingum því ef það er ekki gert þá gera menn það ekkert frekar í leikjum.

En annars er allt hið besta ;) Ég skora síðan á stórþjálfarann Ásgrím til að skrifa næsta pistil

Ps . vona að menn pæli aðeins í þessu menn þurfa samt ekkert að missa svefn J

Kær kveðja   Jón Örvar


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 19:57:09 / Síðustjóri

andlaust lið okkar mann tapar

Liðið keppti fyrir austan um síðustu helgi á móti liði Leiknis frá Fáskrúðsfirði. Leikurinn var mjög bragðdaufur af okkar hálfu og voru menn hreinlega á rassgatinu nánst allan leikinn, undanskildar eru 20 mín í seinni hálfleik þar sem við vorum að spila fínt.

Leiknir kemst í 2-0 mjög sanngjarn miðað við það hvernig leikurinn var að spilast.
Rauða ljónið (Biggi) sem kom inná í hálfleik og reyndi eins og hann gat að berja menn uppúr þessu andleysi, skoraði laglegt mark og minkaði muninn í 2-1. Þetta kveiti greinilega einhverja neista því eftir þetta fór liðið að spila mun betur og stuttu síðar var það síðan Halldór Rafn sem jafnaði metinn með fínu marki eftir fyrirgjöf.
Við áttum nokkur hálffæri eftir þetta en má segja að þarna vorum við búnir að fá nóg og ekkert meira gerðist af okkar hálfu.
Í uppbótartíma fá Leiknismenn síðan vítaspyrnu sem var vægast stagt mjög vafasöm. Úr henni skora Leiknismenn og vinna leikinn 3-2.

Þegar dómarinn dæmdi vítið í lokinn sauð uppúr hjá nokkrum leikmönnum okkar lið og fékk meðal annars Höddi að líta rauðaspjaldið og nokkrir aðrir fengu gult.

Leiðilegt atvik og jafnframt svekkjandi, átti sér stað þegar aðeins 20 mín voru búnar af leiknum, Þá lendir Hemmi Alberts í samstuði og fellur niður sár þjáður. Ég spjallaði við Hemma í gær og sagði hann að menn væru ekki bjartsýnir en talið er að um slitið krossband sé að ræða. En það bera að segja að það er ekkert komið í ljós í þeim málum.

Byrjunarlið: Elías (GK) Sigþór (DL) Öggi (DC) Jónsi (DC) Höddi (DR) Ísak (DM) Hemmi (MC) Jói Hreiðars (MC) Ingvi (MR) Viktor (c) (ML) Örvar (FC)

Bekkur: Halldór (Hemmi '20) Sinisa (Jónsi '77) Snorri Páll (Jói H '84) Egill (Sigþór '60) Reynir (Örvar '89) Atli Páll (Öggir '31)

Frá mínum bæjardyrum séð var ég mjög sáttu með æfinguna í gær, fyrsta skipti í vetur sem er almennileg barátt á æfingu og menn að láta finna fyrir sér. Hins vegar finnst mér að menn mættu taka meira á því á öllum æfingum og fá eitthvað útúr þeim. Þessar æfingar sem við erum í boganum og erum að spila, þar verða menn að fara að leggja sig 100% fram og koma sér í gott form þannig.

Nýr leikmaður:
Nú hefur okkar harðasti gagnrýnasi Ási ákveðið að taka fram skóna og fara að æfa með liðinu og bjóðum við hann bara velkominn til leiks.

kv. Egill Ármann Kristinsson



» 9 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 19:18:38 / Síðustjóri

Stutt og laggott

Bara stutt innslag að þessu sinni. Brottför frá Olís á Dalvík á morgun kl 9.30 og brottför frá Leirunesti á Akureyri kl 10.00. Ég ítreka að þetta er brottfarartímar þannig menn verða mættir aðeins fyr og láta ekki bíða eftir sér.

Leikurinn á morgun byrjar kl 16.00 í Reyðarfjarðarhöllinni. Ég reikna síðan með stemmingu í rútunni.
Síðan þar sem Friðjón er að skorast undan áskorun þá ætla ég að skora á einn mann til að koma með pistil og skora ég á Jón Örvar "Gamla"

kv. Egill


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 12:21:41 / Síðustjóri

Umræðan

Sælir lesendur góðir. Ási  h auglýsti eftir mönnum hérna á síðunni til að segja sínar skoðanir og halda þessari síðu lifandi. Ég er mjög svo sammála því og vona ég að menn geti aðeins lífgað þetta við.

Ég ætla að nota tækifærið og auglýsa eftir Tryggva markmanni og hvað sé að frétta af þessari nýju heimasíðu. Finnst þetta taka svona frekar langan tíma.. En ég segi hvar er Tryggvi.

Egill Ármann


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 00:14:38 / Síðustjóri

1-2 tap gegn Tindastól

Sælir félagar,

Þar sem ég get aldrei sofnað eftir tapleiki þá ákvað ég að velta mér aðeins meira upp úr þessu og skrifa aðeins um leikinn.

Fyrri hálfleikur var lengst um frekar slakur hjá okkur. Lítið gekk að færa liðið fram völlinn og gekk okkur erfiðlega að halda boltanum innan liðsins. Við fengum þrátt fyrir það ágætis færi þegar að Ingvi komst einn í gegn en markvörður Tindastóls varði vel. Þá fékk undirritaður fínt skallafæri sem ekki nýttist. Jói átti svo ágætis tilraun úr aukaspyrnu sem var varin í horn.
Fleiri umtalsverð færi fengum við ekki í þessum hálfleik en Tindastóll fékk svo sem engin opin dauðafæri heldur þannig að þrátt fyrir dapran fyrri hálfleik var leikurinn í jafnvægi.

Þrátt fyrir að margir kunni að vera mér ósammála þá vil ég meina að lang slakasti kafli okkar í leiknum hafi verið fyrstu 20-25 mínútur síðari hálfeiks. Þá lá hreinlega mjög mikið á okkur og stólarnir fengu 2-3 dauðafæri áður en þeir skoruðu svo mörkin sín sem voru í raun óþarfi.
Sóknarlega var lítið að gerast og raunar frekar lítil hreyfing á fremri hluta vallarins, það var því liðsins alls hvernig þessi kafli var.

Síðustu 15-20 mínúturnar kom loks smá baráttu andi í liðið og þá var ekki að sökum að spyrja, við færðum okkur framar á völlinn og strax komu færin og það næstum á færibandi. Því miður nýttust þau ekki í þetta skipti. Við náðum þó að setja eitt mark og vil ég óska Markúsi Darra til hamingju með það, það var virkilega vel að því staðið hjá stráksa og ekki var verra að pabbi gamli horfði á.

En þegar öllu eru á botnin hvolft þá erum við vonandi allir hundsvekktir með þennan leik í kvöld. Þetta var nefnilega mjög slakt og það er ekki nein sárabót þó að leikurinn verði dæmdur 3-0 okkur í hag. Ég hef enga trú á öðru en að menn ætli að gera betur næst. Það nennir enginn að keyra austur í 3-4 tíma til þess að tapa!!

Andstæðingar okkar í næsta leik eru Leiknir og skrifandi um Leikni þá bendi ég mönnum á að þeir eiga að spila við Magna á morgun og mig langar til að hvetja menn til að koma og kortleggja andstæðinga okkar. Held að leikurinn sé kl.17:00.

Búið er að fresta leiknum hjá Magna og Leikni.

Að lokum langar mig svo til að fá menn til að setja sitt komment við þetta, alltaf gaman af umræðum eftir leiki og að menn segi sínar skoðanir. Þó svo að kannski verði þetta aldrei mjög djúpar samræður á vefnum :)

Jónsi


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 18:05:14 / Síðustjóri

Tími kominn á nýja færslu

Ég vill bara byrja á því að þakka þeim sem komu á miðvikudaginn kærlega fyrir skemmtilegt kvöld, þá kannski sérstaklega hinum rafmagnaða Hemma Alberts, sýndi snilldar takkta á gítarnum.

En hvað er eiginlega að frétt af liðinu.?? Jú við erum að byrja að létta okkur núna, stóru lóðunum pakkað niður og send niðrí geymslu og léttu lóðin tekin upp í staðinn. Fyrsta "létta" æfingin var í gær og má segja að þetta sé nú bara nokkuð erfitt þó svo að það sé búið að létta töluvert, en uppá móti kemur og maður þarf að gera þetta oftar.

Nýr þáttur í okkar æfingar ferli er síðan kirkjutröppu dans sem styginn verður núna á eftir kl 18.45. Það verður án ef skemmtilegt og hef ég heyrt að Séra Svavar ætli að standa efst í tröppunum og hvetja okkur áfram og leggja blessun sína yfir þá sem deyja þegar þeir eru hálfnaðir eða þá sem eru heppnir og ná að komast alla leið upp og deyja þar.

Á föstudaginn er síðan leikur á móti Tindastól í lengjubikarnum, leikurinn hefst kl 20.00 en ekki á Reykjavíkur GTM tíma Ingvi.

Við skulum kalla þetta gott og gera okkur reddý í krappan dans sem hefst eftir tæpar 45 mín.

Egill Ármann


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 16:20:40 / Síðustjóri

Pistill frá Hrafninum

Ég vil byrja á því að þakka Hemma fyrir að senda mér pennann, það verður erfitt að koma með pistil á eftir honum enda er þar mjög óvenjulegur maður á ferð, El Grillo, væri til í að vita hvað fer í gegnum hausinn á honum á daginn.  En nóg um Hemma.  Það er varla að ég hafi orku í þetta eftir æfinguna hjá Ása á mánudaginn.Við unnum okkar fyrsta leik gegn Völsung sem er mjög jákvætt, mér finnst persónulega við vera að bæta okkur með hverjum leik. Klassi að fá Jóa þarna inn, hann gefur okkur nýja vídd í spilið. Menn voru misferskir eftir þennan leik enda erfitt að vera  einum manni færri í 60mín og svo tveimur færri í dágóðan tíma. Ísak Einars fór sjálfsagt verst útúr þessu en hann fékk blöðru á löppina og var því frá á mánudagsæfingunni, já ég sagði blöðru, spurning hvernig hann vinnur á þessum meiðslum, sjúkraþjálfari? eða einfaldlega aðgerð. Spurning um að ég feli mig eftir að þetta birtist enda er Ísi heltálgaður og vil ég helst sleppa við það að lenda í honum.   

En það er spurning hvort við byrjum með nýjan leik á síðunni, það var  gaman þegar aumingi æfingarinnar var valinn en það er held ég dottið upp fyrir. Nýi leikurinn mun heita hvar er maðurinn en hann er keimlíkur leiknum „Hver er maðurinn“  Þessi ágæti maður sem ég spyr um er af kvótaætt frá Dalvík og þorði ekki að mæta um daginn þar sem það var síðasti tíminn hjá Óda (sem var í raun næstsíðasti tíminn) þar sem hann hélt að það yrði bara helvíti. Það eru liðnar um tvær og hálf vika síðan ég sá manninn síðast og það er spurning um að hann komi undan rúminu og fari að mæta aftur, Jú ég er að tala um Hinrik nokkurn Símonarson. Það mætti einhver bjalla í hann og segja honum hvernig tímanum líður enda erfitt að átta sig á tímanum ef maður hangir undir rúmi alla daga, einnig segja honum að við séum hættir hjá Óda.

Einnig vil ég hvetja sem flesta til að fara í sturtu eftir æfingar og leiki, ekki það að ég vilji skoða settið á leikmönnum liðsins heldur vantar góða klefastemmningu hjá okkur. Það er alltof mikið um það að menn eru að mæta klæddir og fara beint inn í boga og svo beint út aftur. Maður veit varla hvað allir heita í liðinu. Við þessir 3-4 sem förum  alltaf í sturtu fáum sjálfsagt  leið á hvor öðrum ef engin bætist í hópinn og umræðuefnin hjá okkur eru uppurin þannig að það væri gott ef einhver vildi bætast í hópinn.  En eins og ég sagði áður er góður stígandi í þessu hjá okkur og við toppum vonandi á réttum tíma. Bara vera jákvæðir áfram og hafa gaman af þessu.

Ég ætla senda pennann á hinn verðandi pabba, Friðjón Fowler

 

Takk fyrir mig

Hrafninn


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 00:22:42 / Síðustjóri

Presedent Bush

Menn ekki bara sprækir eftir hlaupaæfinguna. Það er allanvega næsta víst að ég er ekki að fara að sofna fyrren bara á hádegi á morgun. Who gives a shit.

Allanvega ástæða þess að ég ætla að skrifa þennan pistil er sú að á Miðvikudagskvöldið, verður haldinn Liðs"fundur" heima hjá Halldóri okkar Krullupung. Hendum góðri tímasetningu á þetta.. ég er að hugsa um að draga það uppúr hattinum mínum.. bíðiði aðeins.
smá trommuslátt ......tttttrrrrrrrrrrrrrrrrrrtttttttttttttttttrrrrrrrrrrrrr TISS  .. hvað haldið það kom einn Broskall handa atvinnu bloggaranum Hemma :):o:lol::|:s8):d 

Nóg af rugglinu.. Liðs"fundur" heima hjá Dóra Krullu kl 20.00, hann býr í Tjarnalundi
Og það þarf ekki að taka það fram en ég geri það nú samt...
SKYLDUMÆTING,

Gils "The MAN" Kristinsson



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 117819
Könnun
Hverjir vinna Meistaradeildina?
Man Utd
16 atkvæði

Arsenal
11 atkvæði

Chelsea
1 atkvæði

Liverpool
10 atkvæði

Lyon
0 atkvæði

AC Milan
0 atkvæði

Real Madrid
0 atkvæði

Barcelona
3 atkvæði

Porto
0 atkvæði

Sevilla
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 42
Klukkan
Strandarmót 2007